Kæru Snarfarafélagar og tilvonandi handhafar skemmtibátaréttinda.
Skráningarflipi er neðst í þessum viðburði,
Aríel Pétursson, sjóliðsforingi úr danska sjóhernum og formaður Sjómannadagsráðs mun halda námskeið í stjórn skemmtibáta núna í október og nóvember sem lýkur svo með bóklegu prófi í desember og verklegu prófi eftir áramót svo þátttakendur geti verið komnir með réttindi í hús næsta siglingasumar. Aríel hefur stýrt herskipum, varðskipum, fiskiskipum, skútum og síðast en ekki síst – skemmtibátum. Jafnframt hefur hann haldið skemmtibátanámskeið áður fyrir Snarfarafélaga, sinnt kennslu og kadettaþjálfun í danska sjóhernum og er því vanur því að miðla siglingakunnáttu sinni.
Haldið verður þétt á spöðunum og farin hálfgerð hraðferð í náminu sem ætti ekki að vefjast fyrir fólki sem hefur eitthvað umgengist skemmtibáta eða fengið nasaþefinn af þeim. Þess er þó ætlast að þátttakendur kynni sér vel lesefnið heima áður en mætt er í staðlotu niðri í klúbbhúsi sem verður meðal annars verklegs eðlis með sjókort.
Nánari fyrirmæli verða send þátttakendum í tölvupósti.
Þegar greitt hefur verið námskeiðsgjaldið þá verður hlekkur sendur á þátttakendur inn á vefsvæði þar sem öll námsgögn; lesefni, fyrirlestrar og verkefni eru aðgengileg.
Námskeiðið er alls fjögur kvöld:
Miðvikudagur 21. október kl. 19:00-22:00
Miðvikudagur 28. október kl. 19:00-22:00
Miðvikudagur 4. nóvember kl. 19:00-22:00
Miðvikudagur 25. nóvember kl. 19:00-22:00
Bóklegt próf verður haldið í desemberbyrjun í húsi Sjómannaskólans við Háteigsveg og boðið verður upp á endurtekt/sjúkrapróf.
Verklega prófið verður haldið á skemmtibáti sem siglir frá Snarfara og tekur það um 3-4 klst, nemendafjöldi er 5 manns per verklegt próf.
Verðið fyrir námskeiðið er 150.000 krónur fyrir félaga í Snarfara. Mökum og börnum Snarfarafélaga er velkomið að skrá sig á námskeiðið og er verðið það sama.
ATH: Ekki er tekið á móti skráningum fyrir utanfélagsmenn.
Innifalið í verði:
Nemendur þurfa að hafa eftirfarandi með sér:
Hægt er að hafa samband við kennara námskeiðsins í tölvupósti á arielpetursson@gmail.com