Kæri Snarfarafélagi.
Takk fyrir að gefa þér tíma til að lesa nánar um málið.
Stjórn Snarfara stendur frammi fyrir ótal málum og áskorunum í daglegum rekstri félagsins.
Á sama tíma stendur félagið frammi fyrir ótal viðgerðum og viðhaldi sem þarf að ráðast í sem fyrst.
Má þar helst nefna:
- Girðing við grjótgarðinn. Spítur eru fúnar og girðingin er að liðast í sundur.
- Hlið út á bryggjur. Hér þarf að ryðhreinsa, grunna og mála. Gera þetta fínt. Jafnvel mála í einhverjum litum.
- Viðeyjarbryggja. Hún er illa farin eftir veturinn. Verið er að meta tjón og viðgerð og senda þarf hóp út í Viðey til að ganga í málið.
- Veislutjald aftan við hús. Gluggar á tjaldi eru illa leiknir eftir veturinn. Kippa þarf þeim niður og fara með í viðgerð í Seglagerðina.
- Hoppikastalinn. Eitt mesta aðdráttarafl Snarfara fyrir yngstu kynslóðirnar. Það þarf að blása hann upp og þrífa vel. Einfalt verkefni fyrir tvo til þrjá.
- Vatnslögn út á A bryggju. Hún er ónýt og þarf að leggja nýja.
- Olíubryggjan. Fyrst þarf að meta viðgerð og kynna fyrir olíufélaginu. Svo vonandi er hægt að lagfæra.
Stjórn berast fjölmargar ábendingar um hvað betur mætti fara og á sama tíma er þetta sportbátafélag okkar allra.
Stjórn óskar því eftir félagsmönnum, ungum sem öldnum, reynslumikla iðnaðarforingja sem og byrjendur, sem hafa sameiginlegan áhuga á að gera félagið sitt enn betra og leggja sitt af mörkum til þess!
Vinsamlegast skráðu þig hér að neðan - því fylgir engin skuldbinding og alltaf er hægt að afskrá sig!
Sjáirðu þér fært að geta mætt í framkvæmdir þá áttu lof skilið fyrir það.
Smelltu hér til að skrá þig í framkvæmdaráð