Vetrarlokun tekur gildi í dag
Vetrarlokun hafnar tekur formlega gildi í dag, 15. október.
Þeir sem ætla sér að hafa báta sína niðri í vetur fá aðstöðu á A bryggju og bátar af B og C bryggjum verða færðir yfir á A bryggju eftir fyrirmælum hafnarstjóra.
Vinsamlegast ekki færa báta ykkar fyrr en ykkur hefur verið úthlutað nýju stæði.
Þeir bátar á A bryggju sem ekki skrá sig á vetrarstæði geta átt í hættu að missa stæði sitt sé umframeftirspurn eftir stæðum og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Hörður Már hafnarstjóri hefur umsjón með tilfærslu yfir á vetrarstæði.
Stjórn skorar á þá bátaeigendur sem ekki ætli sér að greiða vetrargjald að drífa í að koma bátum sínum á land.