Þerneyjargrill í kvöld

Ágætu félagar.

Þerneyjargrill í dag

Á viðburðarskrá félagsins er í dag fyrirhugað Þerneyjargrill. Samkvæmt venju hefur stjórn lagt til amk. tvær dagsetningar á sumri fyrir Þerneyjargrill þó félagsmönnum sé velkomið að nota aðstöðuna hvenær sem er.

Í þetta skiptið hvetur stjórn félagsmenn til að renna út á pramma og grilla og njóta þeirrar veðurblíðu sem von er á í kvöld. Eins og sakir standa er ekki von á viðveru eða sérstakri skipulagningu að hálfu stjórnar.


Afmælisvarningur á leiðinni

Það er ánægjulegt að segja frá því að framleiðsla er hafin á kaffibollum, derhúfum og snafsglösum með 50ára hátíðarmerkingu félagsins. Því miður náðist ekki að fylla pöntun á lyklakippum.

BROS ráðgera að pöntunin verði afhend í lok næstu viku og verður strax í kjölfarið sendum við póst á þá sem keyptu.


Næturvaktir - byrjar vel

Þrátt fyrir stöku byrjunarörðuleika virðist ný nálgun á skráningu og skýrslugerð fyrir næturvaktir fara vel af stað. Stjórnin hefur móttekið nokkrar ábendingar og gert lagfæringar jafn óðum.

Sem dæmi höfum við nú prentað út eyðublöð og lagt við hlið tölvunnar fyrir þá sem treysta sér ekki eða hafa ekki tæknilega þekkingu til að skrifa næturvaktarskýrslur á tölvuna. Eyðublöðin eru fyllt út á gamla mátann og skilað í bréfalúgu. Áfram biðjum við alla aðra að skila skýrslunum rafrænt.

Þá vinnur tæknistjóri stjórnar nú hörðum höndum að gera dagbókina sýnilega fyrir félagsmenn svo þeir geti opnað dagatalið og séð hvenær þeir höfðu skráð sig.

Við minnum þó á að hverri skráningu fyrir næturvakt er fylgt eftir með tölvupósti til staðfestingar. Í tölvupóstinum er staðfesting á dagsetningu vaktarinnar.

Nóg í bili - allir í bátana.

Kv frá stjórn.