Kæru Snarfarafélagar.
Seinustu daga hefur mikið líf verið við bryggjuna enda siglingasumarið að hefjast og margir bátar á leið á strandveiðar. Við fögnum sumrinu og vonumst eftir almennt góðu veðri og sjólagi í sumar.
Viðburðadagatal
Viðburðadagatal hefur verið birt á vefsíðu okkar - smellið hér til að skoða nánar
Hér að neðan eru helstu dagsetningar sem er gott að taka frá í sumar.
Stjórn óskar eftir áhugasömum félögum sem hafa áhuga á að koma að skipulagi t.d. hópsiglinga á viðburði eða öðrum viðburðum að hafa samband.
Einnig velkomið að hafa samband ef áhugi er að skipuleggja fleiri viðburði í félagsheimilinu, s.s. pílukvöld, pubquiz, félagsvist, bjórkvöld eða annað skemmtilegt.
Áhugasamir vinsamlegast sendið okkur línu á snarfari@snarfari.is
Hús og bryggjur
Viðgerðarskemma
Nú er allt farið á fullt í nýju viðgerðarskemmunni og hafa margir félagsmenn nýtt sér hana og látið vel af. Mjög einfalt er að bóka sér tíma en það er gegnum bókunarvél á heimasíðu Snarfara.
www.snarfari.is/skemma
Viðeyjarbryggja
Viðeyjarbryggja hefur orðið fyrir skemmdum í vetur og er ekki nothæf sem stendur. Stjórn skoðar leiðir til að framkvæma á henni viðgerðir og mun tilkynna um framvindu mála þegar nýjar upplýsingar berast.
Olíubryggja í Snarfara
Olíubryggjan okkar er einnig illa leikin og verður skoðuð á næstu dögum. Það er svo í höndum eiganda bryggjunnar (olíufélagsins) að meta hvort viðgerð sé raunhæf. Snarfarafélagar verða upplýstir um stöðu mála þegar fréttir berast.
Viðgerðir og framkvæmdir
Það er ljóst að fyrir liggja mörg verkefni sem þarf að vinna.
o.fl o.fl.
Þetta er aðeins brot af þeim fjölmörgu verkefnum sem bíða framkvæmda hjá Snarfara og munu líklegast ekki klárast að sjálfu sér.
Stjórn er aðeins skipuð fáum einstaklingum sem hafa fjölmörg mál á sinni könnu, fyrir utan allar þær viðgerðir sem kunna að leita inn á borð stjórnar.
Stjórn óskar því til félagsmanna sem hafa áhuga á því að gera félagið sitt enn betra og myndu vilja ganga í framkvæmdaráð Snarfara. Hér er um að ræða hóp sem væri hægt að hafa samband við sem heild og kynna verkefni sem þyrfti að fara í. Með þessu gætu hjólin snúst enn hraðar og Snarfarafélagar myndu hjálpast að við að hafa hlutina í lagi.
Þessi vinna, eins og önnur, yrði unnin í sjálfboðavinnu en hópnum yrði klárlega umbunað fyrir góða þátttöku.
Hafir þú áhuga á að skrá þig máttu smella hér fyrir neðan, kynna þér málið betur og skrá þig.
Skoða nánar um framkvæmdaráð Snarfara
Nóg í bili!
Kveðja, stjórn.