Kæru Snarfarafélagar.
Þetta árið fagnar Snarfari - félag sportbátaeigenda hálfrar aldar afmæli og mun siglingasumarið einkennast af þeim merku tímamótum.
Í tilefni þess létum við hanna afmælisútgáfu af merkinu okkar sem við ætlum okkur að nota sem víðast restina af árinu.
Það voru hönnuðir hjá Bros merkingum sem sáu um gerð merkisins og munu þeir einnig framleiða fyrir okkur varning með afmælismerkinu, svo sem kaffibolla, lyklakippur, derhúfur, bátaveifur, fána o.fl.
Varningurinn er sannarlega söfnunargripur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara og hyggst stjórnin hefja sölu á varningi á allra næstu dögum.
Allur söluvarningur verður seldur á kostnaðarverði og í krafti fjöldans verður vonandi hægt að knýja fram góðan magnafslátt hjá Bros. Ath; aðeins verður gerð ein hóppöntun.
Salan verður auglýst vonandi í næstu viku þegar próförk er tilbúin frá Bros. Stjórn mun þá taka saman pantanir fyrir félagsmenn og mun framleiðslan svo taka nokkra daga í kjölfarið.
Svona myndi 50 ára afmælisbollinn líta út. Vafalaust verður betra kaffið úr svona fallegum bolla.
Fylgist með á næstu dögum þegar sala á afmælisvarningi Snarfara hefst.
Hafir þú hugmynd að sniðugum varningi sem gæti slegið í gegn í hóppöntun tökum við á móti tillögum á netfangið snarfari@snarfari.is
Kveðja, stjórn.