Gleðilegan sjómannadag!

Ágætu félagar.

Við óskum Snarfarafélögum, fjölskyldum þeirra og sjófarendum öllum til hamingju með daginn.

Í tilefni dagsins efnum við til kaffisamsætis í félagsheimili Snarfara eins og venjan hefur verið síðustu árin.

Kaffiboðið verður með hefðbundnu sniði og vonumst við til þess að sjá sem flesta Snarfarafélaga og þeirra fjölskyldur.

Kaffið hefst kl. 15:00 í dag og stendur fram eftir degi.

Hoppukastali og trampolín verður á svæðinu.

Við hlökkum til að gleðjast og fagna með ykkur á þessum hátíðardegi sjómanna.

Kveðja frá stjórn Snarfara.