Sumarið virðist fara gríðarlega vel af stað og ekki ber á öðru en allt gangi vel og hefur almennt viðrað vel.
Umgengni í félagsheimili
Það er oft og tíðum mjög gestkvæmt í félagsheimilinu. Félagsmenn setjast niður með kaffi og bakkelsi og fara yfir heimsmálin á meðan aðrir taka sér matarpásur frá viðhaldi báta sinna í félagsheimili - til þess er húsið og er ánægjulegt hve félagsheimilið okkar er fullt af lífi.
Stjórn hafa borist ábendingar um slæma umgengni í félagsheimilinu okkar.
Gerð var stikkprufa á dagbókarfærslum eftir næturvaktir og voru þessar orðsendingar teknar upp úr færslum sem aðeisn spannaði 10 daga tímabil.
Það er leitt að lesa að fólk eigi erfitt með að ganga frá eftir sjálft sig.
Þeir taki til sín sem eiga og vonandi sjáum við bætingu á.
Þá minnir stjórn aftur á að reykingar eru bannaðar við félagsheimilið framan við hús við aðalinngang og næsta umhverfi.
SMS tilkynningar frá Snarfara
Snarfari hefur nýtt sér þjónustu fyrirtækis vegna SMS tilkynninga til félagsmanna um árabil. Án viðvörunar barst Snarfara tilkynning um að fyrirtækið væri hætt í þeim bransa og er stjórn nú að leita að tilboði frá nýjum aðilum og mun í kjölfarið hefja innleiðingu á nýju kerfi.
Ekki er vitað hvað þetta tekur langan tíma en stjórn biður félagsmenn að fylgjast vel með tölvupóstum og fréttatilkynningum á heimasíðu Snarfara þar til samkomulag hefur náðst um máilð.
Vilji svo til að einhver félagsmanna sé kunnugur um svona þjónustu eða hafi góða reynslu af má viðkomandi gjarnan senda póst á snarfari@snarfari.is með ábendingu.
Nýr internetþjónustuaðili
Skipt var um þjónustuaðila á internetþjónustu í félagsheimli fyrir fáeinum vikum. Sagt var upp þjónustu við Símann og gengið til samninga við Hringiðuna. Hringiðan býður betri þjónustu á betra verði. Með þessari breytingu keypti Snarfari sinn eigin búnað (Router) í stað þess að leigja hann.
Var því sett upp ný þráðlaus internet tenging í félagsheimili með nýju lykilorði. Upplýsingar um það hanga á vegg við aðalinngang.
Örlitlir tæknilegir örðuleikar hafa verið á interneti (ótengt nýjum búnaði) og myndavélakerfi misst samband við internet. Félagsmenn geta verið rólegir þó myndavélar detti út af interneti þar sem upptaka er sífellt í gangi.
Sími í félagsheimili
Glöggir félagsmenn hafa tekið eftir borðsíma sem tengdur hefur verið í hillunni við eldhúsið. Síminn hefur verið á leiðinni í dágóðan tíma og er nú loksins mættur og tengdur.
Fyrst og fremst er þetta öryggistæki fyrir félagsmenn sem kunna að lenda í vandræðum hvort sem það er á hafi eða í landi og þurfa að kalla í aðstoð sem er stutt frá.
Stjórn biður félagsmenn að skrá símanúmerið hjá sér.
S: 581 4420
Bryggjuhátíð 17. og 18. júlí - takið helgina frá!
Bryggjuhátíð verður haldin 17. og 18. júlí.
Eins og segir í tilkynningu á Facebook er dagskráin svohljóðandi:
Fös: Kjötsúpa og quiz
Lau: Grill & dansleikur. Hljómsveitin Hrúðurkarlar leikur fyrir dansi.
Nánari upplýsingar og skráning á næstu dögum.
Kær kveðja frá stjórn.