Fréttabréf stjórnar 3. júní

Ágætu félagar.

Hér hefur að líta næsta fréttabréf. Í þetta skipti er af mörgu að taka og biðjum við félagsmenn að lesa bréfið frá byrjun til enda.


Frábær mæting í sjómannadagskaffið

Það er alltaf ánægjulegt hve góð mæting er í sjómannadagskaffið okkar. Það er ómetanlegt að hitta félagsmenn og fjölskyldur þeirra og eiga með þeim þessa stund. Við þökkum fyrir allar heimagerðu kræsingarnar og minnum félagasmenn á að það eru kökuafgangar á kæli í félagsheimili sem má endilega hjálpast að við að klára - fullkomið með kaffinu.


Borðin ætluðu að svigna undan álagi við að bera allar kræsingarnar.


Afmælisvarningur - sölu lýkur sunnudaginn 8. júní

Það er greinilega áhugi á söluvarningi með 50 ára afmælismerki félagsins en þó er enn nokkuð í land að ná lágmarkspöntun á vörum.
Til stóð að loka glugganum í dag en við framlengjum frestinn til 8. júní.
Mánudaginn 9. júní verður pöntunin send til BROS.

Staðan á hóppöntuninni er svona:

  • Kaffibollar = 34 pantaðir af 72 (Vantar 38)
  • Lyklakippur = 18 pantaðar af 200 (Vantar 182)
  • Derhúfur = 24 pantaðar af 50 (Vantar 26)
  • Snafsglös = 35 pöntuð af 48 (Vantar 13)

Stjórnin hvetur alla félagsmenn sem ætla að næla sér í varning að gera það hið snarasta svo hægt sé að loka pöntuninni. Náist ekki lágmarkið fellur þetta um sjálft sig.

 

 

 

Leggja inn pöntun


Reykingar við félagsheimili

Stjórn minnir félagsmenn á ákvörðun sem tekin var á síðasta stjórnarfundi að nú skuli banna reykingar á sólpalli/verönd félagsheimilisins. Ákvörðunin er tekin í takt við breyttar áherslur í samfélaginu almennt.
Stjórnin hefur fengið þónokkrar ábendingar um að gestir félagsheimilis, bæði fullorðnir og börn, þurfi að vaða reyk til að komast inn í húsið og getum við ekki unað við því.

Vonast stjórn eftir góðu samstarfi við þá sem höfðu lagt í vana sinn að sitja framan við hús og kveikja sér í tóbaki um þessa breytingu.

Til að byrja með verða reykingar leyfðar sunnan megin við húsið - sjáum hvernig það gengur og tökum svo stöðuna síðar.


Opin hlið - opnar hurðir - allt ólæst

Nú eftir að bryggjur opnuðu í vor hefur það gerst óþarflega oft að hlið út á bryggjur eru skilin eftir opin og fest í spotta svo þau læsist ekki.
Stjórn hefur fullan skilning á því að bátaeigendur hafi opið meðan bátar eru lestaðir og beðið er eftir farþegum eða farþegar þurfi að hoppa í land - enda til þess er spottinn.

Hliðin hafa verið opin svo dögum skiptir og allir virðast labba í gegn og ekki læsa á eftir sér. Nú þarf að gera átak í þessu og passa að hliðin séu alltaf lokuð og læst. Það er ástæða fyrir hliðunum - þau væru ekki þarna öðruvísi.

Eins með bómuna við rennuna - hún er skilin eftir opin meðan félagsmenn fara út á flóa - í millitíðinni hafa utanfélagsbátar verið sjósettir án okkar vitundar.

Nú sérstaklega meðan beðið er eftir nýja veghliðinu biðlum við til félagsmanna að passa að loka á eftir sér og læsa öllum hliðum, bómum og hurð í viðgerðarskemmu.
Þegar kvölda tekur má einnig skella félagsheimilinu í lás ef enginn er á svæðinu.


Næturvaktir - gengur vel!

Nú hefur komist þokkaleg reynsla á nýtt, rafrænt næturvaktakerfi og virðist þetta byrja nokkuð vel. Ein breyting hefur þegar verið gerð og það er að næturvakt lokinni skal skrifa skýrslu í tölvuna í félagsheimilinu - en ekki í símann sinn eins og var í boði fyrst.

Það er gaman að segja frá því að ekki var ein nótt ómönnuð í maí og er útlit fyrir fullmannaðar vaktir í júní einnig.

Varðandi verkefni næturvaktar þá verður settur upp nýr verkefnalisti í félagsheimili á næstu dögum. Hann verður alveg eins og sá eldri - en við bætist QR kóði til að skrá sig á næturvakt. Þá verður verkefnalistinn á aðeins áberandi stað en sá gamli.

PS: Stjórn áréttir að fyrir hvern bát í félaginu þurfa eigendur að taka tvær næturvaktir á hverju almanaksári.

Skrá mig á næturvakt


Við þökkum lesturinn að sinni.
Þerneyjardagur er fyrirhugaður þann 14. júní nk. - eftir veðri.
Auglýst þegar nær degur.

Kveðja, stjórn.