Ágætu félagar.
Sjómannadegi verður fagnað sunnudaginn, 1. júní kl. 15:00.
Við hlökkum til árlegs kaffiboðs í Snarfara í tilefni sjómannadags og nú sér í lagi í nýendurbættu félagsheimili okkar.
Kaffið hefst kl. 15:00 og stendur fram eftir degi.
Vonandi verða veðurguðirnir með okkur í liði svo við getum nýtt sólpallinn og blásið upp hoppukastalann fyrir þau sem yngri eru.
Óskum eftir kaffiveitingum frá félagsmönnum.
Líkt og síðustu ár býður félagið upp á stóra rjómatertu, kaffi og aðra drykki.
Við óskum því eftir kræsingum frá félagsmönnum enda aukast vinsældir sjómannadagskaffis ár frá ári og klárast veitingarnar jafn oft eins og bætt er á.
Við hlökkum til að gleðjast og fagna með ykkur á þessum hátíðardegi sjómanna.
Afmælisvarningur vinsæll
Vel gengur að safna í hóppöntun á afmælisvarningi og leynir sér ekki áhuginn.
Eins og tekið var fram í síðasta pósti þá var óvissa um kostnað á snafsglösum en nú höfum við fengið staðfest að verð per snafsglas er 1.620 kr. (ekki 2.500 kr.)
Þeir sem þegar hafa lagt inn pöntun en vilja bæta við geta lagt inn nýja pöntun og mun stjórnin taka saman. Þeir sem þurfa að hætta við pöntun vinsamlegast hafið samband við stjórn á snarfari@snarfari.is.
Reykingar við félagsheimili
Ákvörðun var tekin á síðasta stjórnarfundi að nú skuli banna reykingar á sólpalli/verönd félagsheimilisins.
Ákvörðunin er tekin í takt við breyttar áherslur í samfélaginu almennt.
Stjórnin hefur fengið þónokkrar ábendingar um að gestir félagsheimilis, bæði fullorðnir og börn, þurfi að vaða reyk til að komast inn í húsið og getum við ekki unað við því.
Vonast stjórn eftir góðu samstarfi við þá sem höfðu lagt í vana sinn að sitja framan við hús og kveikja sér í tóbaki um þessa breytingu.
Kveðja, stjórn.