Bryggjuhátíð hefst á morgun - skráningu lýkur í dag

🎈 Bryggjuhátíð hefst á morgun ⚓

Kæri viðtakandi.
Á morgun hefst okkar frábæra, árlega bryggjuhátíð.

Skráningu er lokið.
Hvernig sem viðrar á okkur um helgina þá skemmtum við okkur saman í góðum félagsskap yfir góðum mat.

Skráðu þig hér að neðan og sjáumst um helgina!

Föstudagur 17. júlí - Kjötsúpa og pubquiz

  • Fjörið hefst með fordrykk kl. 18:00.
  • Klassísk kjötsúpa
  • Kaldur í boði Snarfara
  • Pubquiz

 

Laugardagur 18. júlí - Bryggjuhátíð

  • Morgunverður í félagsheimili í boði Snarfara mili 09:00 og 11:00
  • Trampólín, hoppukastali og íspinnar fyrir börnin yfir daginn (ef veður leyfir)
  • Bryggjuhátíð hefst kl. 18 með fordrykk og mun Höfðakaffi sjá um að grilla ofan í hópinn
  • Léttvín, hvítt & rautt með mat í boði Snarfara. Um að gera að grípa með sér veigar í poka.
  • Hljómsveit stígur á stokk um kl. 22:00

 

Velkomið er að koma með húsbíla, hjólhýsi eða aðra ferðavagna á staðinn. Nóg rafmagn fyrir alla.

Verð:

Föstudagur: Súpukvöld: 2.000 kr. á mann
Laugadagur: Bryggjuhátíð: 5.000 kr. á mann
Börn yngri en 18 ára fá frítt í matinn í fylgt með fullorðnum og er mikilvægt að skrá fjöldann eftir því.

Kveðja, stjórn.