Bryggjuhátíð 2026 - skráning hafin

Stjórn hvetur félagsmenn og konur að skrá sig á glæsilega bryggjuhátíð sem haldin verður helgina 17. - 18. júlí. Skemmtum okkur saman á bryggjunni og njótum sumarsins.

Föstudagur 17. júlí - Kjötsúpa og pubquiz

  • Fjörið hefst með fordrykk kl. 18:00.
  • Klassísk kjötsúpa
  • Kaldur á krana í boði Snarfara
  • Pubquiz um kvöldið þar sem keppt verður á fjögurra manna borðum
  • Setið og spjallað fram eftir kvöldi

 

Laugardagur 18. júlí - Bryggjuhátíð

  • Morgunverður í félagsheimili í boði Snarfara mili 09:00 og 11:00
  • Trampólín, hoppukastali og íspinnar fyrir börnin yfir daginn
  • Bryggjuhátíð hefst kl. 18 með fordrykk og mun Höfðakaffi sjá um að grilla ofan í hópinn
  • Léttvín, hvítt & rautt með mat í boði Snarfara. Um að gera að grípa með sér veigar í poka.
  • Hljómsveitin Hrúðurkarlar (hét áður Marbendlar) stígur á stokk um kl. 22:00.


Matseðill kvöldsins er grillað lambafillet að hætti Höfðakaffi.

Gisting: Stjórn hvetur félagsmenn til að gista á staðnum í bátum sínum fyrir þá sem eiga kost á því en einnig er velkomið að koma með húsbíla, hjólhýsi eða aðra ferðavagna á staðinn. Nóg rafmagn fyrir alla. Einnig mun stjórn slá grasið við félagsheimilið svo einnig er hægt að gista í tjöldum.

Verð:

  • Föstuagur: Súpukvöld: 2.000 kr. á mann - súpa & bjór
  • Laugadagur: Bryggjuhátíð: 5.000 kr. á mann - grillveisla & léttvín

Vakin er athygli á því að viðburðurinn er aðeins fyrir félagsmenn, þeirra maka og fjölskyldur.
Verðið miðar við fullorðna, 18 ára og eldri.
Börn yngri en 18 ára fá frítt í matinn í fylgt með fullorðnum og er mikilvægt að skrá fjöldann eftir því.

Skráning er hafin og hvetjum við félagsmenn að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að áætla fjöldann í tæka tíð.

SKRÁ MIG Á BRYGGJUHÁTÍÐ

Skráningu lýkur miðvikudagin 15. júlí.