Bjórkvöld & Pubquiz

Bjórkvöld og Pubquiz! 🍻

Laugardaginn 31. október nk. verður haldið bjórkvöld og pubquiz í félagsheimili Snarfara. Við hvetjum Snarfarafélaga til að mæta, taka þátt og skemmta sér í góðum félagsskap.
Húsið opnar um kl. 20:00 og býður Snarfari upp á ískaldan öl á meðan birgðir endast.

Hinn eini sanni partýstjóri og Snarfarafélagi Ásgeir Páll stýrir pubquiz af sinni alkunnu snilld og er hefst spurningakeppnin upp úr kl. 21:00.

ATH: Nú leitar stjórn eftir vinningum í PubQuiz. Séu einhverjir félagsmenn í aðstöðu til að skaffa vinninga þá vinsamlegast setji sig í samband við stjórnarmann beint - eða á snarfari@snarfari.is.