Kæru Snarfarafélagar.
Pantanir á bollum, lyklakippum, snafsglösum og derhúfum tók kipp eftir síðasta fréttabréf en þó vantar enn upp á að náist að fylla í lágmark fyrir allt nema snafsglösin.
Í dag, mánudaginn 9. júní, er síðasti séns til að leggja inn pöntun.
(Vefstjóri áttaði sig ekki á því að í dag væri 2. í hvítasunnu svo það bættist við einn dagur.)
Í fyrramálið verður pöntun send á Bros með aðeins þeim varningi sem næst að fylla í lágmarkið.
Snarfarafélagar mega ekki láta þetta tækifæri framhjá sér fara enda frábærir söfnunargripir og aðeins í boði þetta eina skipti.
Stjórnin hvetur alla félagsmenn sem ætla að næla sér í varning að gera það hið snarasta svo hægt sé að loka pöntuninni. Náist ekki lágmarkið fellur þetta um sjálft sig.
Kaffibolli - verð: 3.390 kr. stk. (gæti enn náðst)
Lyklakippa - verð: 1.090 kr. stk (ólíklegt að náist)
Derhúfa - verð: 2.710 kr. stk (gæti enn náðst)
Snafsglas - verð: 1.620 kr. stk (lágmarki þegar verið náð)