Fjölskyldu-, hreinsunardagur og lyklaskipti

 

Helgina 11. - 12. maí stefnum við á að halda fjölskyldu- og hreinsunarhelgi.

 

Dagurinn verður með nokkuð hefðbundnu sniði eins og síðustu ár og verður kveikt upp í grillinu þegar líða tekur á daginn.

Endilega bjóðum fjölskyldum, börnum og barnabörnum með. Hoppukastali og fleira skemmtilegt fyrir þau yngstu.

Við byrjum kl. 09 og ef vel gengur og mæting er góð verðum við komin í grillið upp úr hádeginu.

Að hreinsa og gera fínt fyrir sumarið er ekki létt verk og skorum við á sem flesta félagsmenn að mæta á svæðið og taka þátt í starfinu.
Hugsanlegt er að unnið verði bæði laugardag og sunnudag enda mörg verkefni fyrir höndum.

Sjáumst vonandi sem flest og hjálpumst að að gera svæðið okkar fínt og fallegt fyrir komandi sumar.

Lyklaskipti verða einnig sömu helgi (aðeins á laugardegi) og nýir sílendar settir í á sunnudeginum.
Allar skuldir skulu vera uppgerðar fyrir lyklaskiptin.

Vinsamlegast athugið að hreinsunardegi kann að verða frestað ef veður og vindar eru óhagstæðir.

Með kveðju, Stjórn.